Ólafur The gæsa slayer
góðann daginn...
Þessar andskotans gæsir eru að gera mig brjálaðan, og nú má með sanni segja að ég sé opinberlega orðinn versti óvinur gæsa...Þeirra versta martröð...
Ekki nóg með að ég sé búinn að taka eina nánast inn um framrúðuna hjá mér þá sýndi ég hinum gæsunum að það á ekki að verða í mínum vegi, þessi tiltekni atburður gerðist um þrjúleytið í nótt.
vínkona mín var að keyra okkur heim úr afmæli út á landi þegar að einn satansfuglum og smitberi hræðilegra sjúkdóma lenti á speglinum og mölbraut hann...
ég bið ökumanninn(sædísi) að stöðva bifreiðina og þá byrjaði veiðin eins og þeir segja "It was on" á harðahlaupum nið eftir þjóðveginum sé ég skrípið greinilega eitthvað vönkuð eftir áreksturinn og þegar ég nálgast hana þá flýg hleypur eitthvernveginn í burtu og ég að sjálfsögðu á eftir.
Gæsin nær útí mývatn og ég ætlaði ekki að láta það stoppa mig heldur óð útí á eftir henni í galla buxunum kominn upp að mitti hverfur gæsin ofaní vatnið og þær kunna alveg að synda.
ég sting hendinni ofamí og gríp hana um hálsinn fer með hana að bílnum keyri með afturdekkið yfir hausinnn á henni og slít af henni hausinn.
kannski er rétt að minnast þess að þegar þessi grimma aftaka fór fram þá var ég undir áhrifum bakkusar.
síðan tók ég hausinn með mer og fór að sofa
þetta gæsavesen er hrikalegt, vitiði hvað nýr spegill kostar,hann er ekki ódýr.
allavegana þá kem ég suður á fimmtudaginn og hafiði það sem allra best
Ólafur Ísak Friðgeirsson
