Ný Síða.velkomin
sæl og blessuð, þetta er hann ólafur hérna sem er að blogga..og er þetta held ég í fyrsta sinn sem ég blogga, ég vona að ég geri þetta rétt og fólk liggi ekki um af hlátri og hlægi ógeðslegum hlátri af mínum forheimskilegum mistökum og kalli mig heimskulegum nöfnum, eins og vanviti, tardur, skítseiði, drykkjusjúklingur og/eða rassavatn. einhver gæti sagt " hehe hann óli er svo mikið rassavatn!!:)" ef að það gerist þá mun ég að öllum líkindum hrækja upp í viðkomandi meðan hann/hún sefur. Þessi tegund af hefnd er ágæt vegna þess að manneskjan kemst ekkert endilega af þessu en ég mun vita hvað gerðist og síðan þegar við hittumst einhversstaðar og hún glottir og horfir á mig hæðnisagum vegna þess að hún kallaði mig rassavatn þá hef ég þrjá möguleika,NR1. ég þykist ekkert vita en hlæ stórfengilega inní mér að minni snilldargáfu og íllsku!!
NR2. ég spyr afhverju glottiru svona og manneskjan segir eitthvað heismulegt eins og "haa glotta hehe, Hvað?? hættu þessu, hehe," en þá kem ég með varstu ekki að kalla mig rassavatn um daginn? þá bugast manneskjan niður og biður mig um vægð meðan hún sleikir á mér tærnar, þá segi ég þetta er alltílagi, ég fyrirgef þér.
NR3. ég segi takk fyrir að kalla mig rassavatn en ég er búinn að hefna mín með því að hrækja uppí þig meðan þú svafst. og við sættumst og förum saman í fótboltakassann í mjódinni
Já þetta líf býður upp á marga möguleika en takk fyrir mig í bili og ég kem í bæinn á morgun, föstudaginn 7 apríl.
P.S. megi hann ingvar vinna söngvakeppnina svo hann geti orðið Rokkstjarna!!!
06. apríl 2006 klukkan 22:42
Ólafur Ísak Friðgeirsson
Ólafur Ísak Friðgeirsson

frumlegur.....:) þú sagðist ætla að toppa okkur stelpurnar......haha, sé það ekki gerast í hinni
nánustu framtíð....rassavatn;)
En sjáustum í bænum um helgina, hlakka til að sjá þig, eins gott þú kíkir í bæinn á föstudagskvöldið;)
og komir með fermingagjöf fyrir Kalla litla og líka fyrir mig því að ég er systir fermingabarnsis og þú
átt eftir að gefa mér jólagjöf og afmælisgjöf!!!...hvað á það að þýða??:/ kannski luma ég á
afmælisgjöf fyrir þig þegar þú kemur.....aldrei að vita:)
En later......og vertu nú duðlegur að blogga, það hlýtur nú ýmislegt á daga þína að drífa þarna á
Laugum:)